Leita








Menning og listir

Byggðasafnið á Garðskaga var fyrst opnað almenningi þann 26. nóvember 1995 í gömlum útihúsum. Safnið hefur til sýnis ýmsa muni sem tengdust búskap og sjósókn en margt merkilegra muna úr byggðasögu Garðsins er á safninu. Má þar nefna yfir 100 ára trérennibekk, heimasmíðað ferðaorgel sem jafnframt er yfir 100 ára, sexæring með Engeyjarlagi sem byggður var árið 1887 og fleira.

Á tíu ára afmæli safnsins var tekið í notkun nýtt 700 fermetra safnahús með kaffihúsi á efri hæð sem nefnd var Flösin. Þar er hægt að gæða sér á kaffi og meðlæti og njóta stórfenglegs útsýnis af svölum hússins. Í húsinu er aðstaða fyrir ýmsar uppákomur og listsýningar og hafa fjölmargir listamenn og handverksfólk sýnt verk sín á safninu.  Sveitarfélagið styður vel við bakið á lista- og handverksfólki og fagnar öllum þeim sem koma vilja list sinni á framfæri í bænum. Veitingasalurinn Flösin er einnig kjörinn fyrir veislur og fundahöld.

Garður er aðili að uppbyggingu Menningarseturs að Útskálum en Útskálaprestssetrið er eitt elsta prestssetur landsins.
Útskálasókn, Sveitarfélagið Garður og Sparisjóðurinn í Keflavík hafa myndað félag um að gera Útskálahúsið upp sem sérstakt menningar- og fræðasetur.  Í setrinu verður sögu og menningarhlutverki prestssetranna á Íslandi, í gegnum aldirnar, gerð skil með því að setja upp sýningar með gripum, myndefni og texta.  

 

Garðbúar halda Sólseturshátíð á hverju sumri á Garðskaga þar sem þeir koma saman til að njóta tónlistar, myndlistar og skemmtunar. Mjög góð aðsókn hefur verið á hátíðina undanfarin ár og dagskrá hennar og umfang verður meira með hverju árinu. Margir heimamenn koma með tjöld, fellihýsi eða hjólhýsi og fara í útilegu á Garðskaga auk þess sem brottfluttir Garðbúar sækja Garðinn heim yfir hátíðina.

Fjölmargar fallegar myndir af Garði, náttúrunni, fuglalífi, Garðskaga og fleiru er að finna í myndasafni.


 

 

 

 

 


 



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta