
Unnið er að ýmsum verkefnum í umhverfisnefnd Garðs. Hér fyrir neðan má sjá umfjöllun um helstu verkefni þessa árs.
Blái herinn tók að sér hreinsun á strandlengjunni og byrjaði verkið við Garðskaga á degi umhverfisins þann 25. apríl sl. Þá mættu bæjarfulltrúar ásamt nemendum úr Gerðaskóla og tóku til hendinni saman. Svf. Styrkti herinn til verksins en 3. og 4. flokkur Víðis tók einnig þátt og fengu greiddan styrk frá sv.félaginu fyrir sína vinnu. Sportkafari frá bláa hernum hreinsaði einnig rusl við höfnina í Garði.
Þetta verkefni skilaði 22,5 tonnum af rusli á réttan stað, ýmist til endurvinnslu eða urðunar.
Vorhreinsun í Garði var með öðruvísi hætti en vanalega í ár þar sem einstaklingar og félagasamtök gátu tekið að sér ákveðið svæði í umhverfinu og fengið greiddan fyrir það styrk eða grillveislu að lokinni tiltekt. Þeir sem tóku þátt:

Auðarstofa hreinsaði til við Rafnkelsstaðaveg og grillaði á eftir
1. bekkir Gerðaskóla hreinsuðu til á svæðinu milli Garðbrautar og Eyjaholts og fengu ís fyrir
Valgeir Jens Guðmundsson íbúi að Garðbraut 100 hreinsaði til við afleggjara að Bræðraborg og fékk greiddan styrk fyrir.
Gerðaskóli og Gefnarborg tóku þátt í verkefninu og hreinsuðu til á ýmsum svæðum í bænum.
Heimilisfólk á Gauksstöðum hreinsaði til í fjörunni og á túnum.
Samtökin SEEDS eða See beyond borders hjálpuðu til við að hreinsa og fegra bæinn fyrir 100 ára afmælið. Sjálfboðaliðarnir voru mjög ánægðir með dvölina í Garðinum og gaman var að fylgjast með því hversu vel Garðbúar tóku á móti þeim.
Hreinsunarátak í kringum fyrirtæki var sett af stað um leið og vorhreinsunin. Umhverfisnefnd fór einnig í ítarlega skoðunarferð þar sem skráð var niður það sem betur mætti fara umhverfis fyrirtæki. Það er ánægjulegt að segja frá því að margir brugðust vel við ábendingum nefndarinnar og tóku til hendinni á sinni lóð en betur má ef duga skal. Samstarf sveitarfélags og atvinnurekenda er mikilvægur þáttur í þessu verkefni.

Umhverfisviðurkenningar voru veittar þann 17. júlí sl. en það voru þau Þorsteinn Eyjólfsson og Harpa Ólafsdóttir sem hlutu verðlaun fyrir fallegan garð að Valbraut 10. Í garðinum má sjá skemmtilegt samspil steina, gróður og timburs, hann er vel skipulagður, einfaldur en snyrtilegur. Viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi hlutu þau Ágústa Hansdóttir og Halldór Pétursson fyrir miklar endurbætur á lóð og umhverfi að Klapparbraut 9 og Knútur Guðmundsson fyrir snyrtilegt umhverfi að Kríulandi 21. Viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi í kringum fyrirtæki hlaut Bifreiðaverkstæði Sigurðar Guðmundssonar og hvatningarverðlaun fyir snyrtilegt umhverfi götu hlutu íbúar við Valbraut.
Í sumar var afmarkað svæði til uppgræðslu í heiðinni. Sendur var bæklingur með upplýsingum um mikilvægi þess að koma grasi og garðaúrgangi í réttan farveg til þess að hægt sé að endurnýta hann í umhverfinu. Viðbrögð við átakinu voru mjög góð en uppgræðslunni verður haldið áfram næsta sumar.
Evrópska samgönguvikan er nýafstaðin en Garður var eitt af fjórum sveitarfélögum á Íslandi sem tóku þátt í ár. Sendur var bæklingur til íbúa þar sem minnt var á mikilvægi þess að huga að vistvænum samgöngum. Veðrið lék okkur grátt og við þurftum að fresta skipulögðum viðburðum en það gengur bara betur næst.
Unnið er að því að bæta aðstöðu við göngustíga bæjarins. T.d. er verið að setja lýsingu við Klapparrás en næsta verkefni yrði að gera Kambinn greiðfærann.
Næstu verkefni:
Bæta upplýsingar á heimasíðunni um umhverfismál
Halda hugmyndafundi með íbúum, ungum sem öldnum
Gefa út umhverfisstefnu Garðs
Halda áfram að þróa þau verkefni sem unnið er að í dag.