Staðardagskrá 21
Unnið er að mótun áætlunar í anda Staðardagskrár 21 í Garði. Á þessari síðu má sjá fréttir og tilkynningar tengdar málefninu og hægt er að fylgjast með framvindu mála.
Miklu skiptir að íbúar, stofnanir og félagasamtök taki þátt í áætlanagerðinni en haldnir verða fundir með fulltrúum allra hópa. Þannig verður haldinn fundur með eldri borgurum, leik- og grunnskólabörnum, atvinnurekendum, forsvarsmönnum félagasamtaka, forstöðumönnum stofnana og svo framvegis.
Í október sl. var útbúinn kynningarbæklingur um Staðardagskrá 21 sem sendur var á öll heimili í Garði. Í kjölfarið var haldinn kynningarfundur í Samkomuhúsinu þar sem Arnheiður Hjörleifsdóttir ráðgjafi hjá Staðardagskrárskrifstofu kom og kynnti efnið fyrir fundargestum. Fundurinn var mjög áhugaverður en hægt verður að nálgast samantekt frá fundinum hér.
Kynningarbæklingur um Staðardagskrá 21.
Tíunda Landsráðstefna Staðardagskrárskrifstofu var haldin í febrúar sl. á Hótel Örk í Hveragerði. Helstu áherslur ráðstefnunnar voru tengsl útivistar og heilsu, sérstaklega geðheilsu. Á ráðstefnunni kom margt merkilegt fram, meðal annars hversu gríðarlega mikilvægt það er fyrir manninn að tengjast náttúrunni á einhvern hátt. Fjallað var um nauðsyn þess að hafa náttúruna og útivistamöguleika til hliðsjónar við skipulagsbreytingar og við gerð aðalskipulags sveitarfélaga.
Hægt er að nálgast glærur og fyrirlestra frá ráðstefnunnni í heild sinni á síðu Staðardagskrár 21,
Smelltu hér til þess að lesa frétt af heimasíðu Garðs um ráðstefnuna.
Ólafsvíkuryfirlýsingin - Samþykkt í bæjarstjórn Garðs 2. maí 2007. Fulltrúi Garðs undirritaði yfirlýsinguna formlega ásamt Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra á Landsráðstefnu Staðardagskrár 21 þann 8. febrúar sl.