Erum við á réttri leið?
Samgönguvika í Garði, 16. – 22. september 2009.
Sveitarfélagið Garður tekur nú í annað sinn þátt í Evrópskri samgönguviku en yfir 2000 evrópskar borgir taka þátt að þessu sinni. Markmið vikunnar er að vekja athygli á mikilvægi vistvænna samgangna og stuðla að bættum loftgæðum í borgum og bæjum í Evrópu. Á Íslandi hefur vikan hlotið yfirskriftina, Erum við á réttri leið?.
Dagskrá Samgönguviku í Garði verður fjölbreytt og skemmtileg en hún miðar að því að kynna vistvæna möguleika í sveitarfélaginu. Vikan hefst á íbúafundi þar sem samgöngumál eru meðal annars á dagskrá. Þar fá íbúar tækifæri til þess að koma skoðunum og hugmyndum sínum á framfæri. Hugmyndir nemenda Gerðaskóla og Gefnarborgar verða einnig kynntar á fundinum en afrakstur hans verður nýttur við gerð áætlanar í anda Staðardagskrár 21. Nýtt og betrumbætt strætókerfi verður einnig kynnt.
Garðbúar og aðrir Suðurnesjamenn. Sýnum gott fordæmi og nýtum vistvænar samgöngur, inn með bílinn og út með hjólið!
Í Samgönguvikunni mun bæjarstjóri undirrita viljayfirlýsingu við verkefnið 2012, nýtt upphaf en það er unnið af Northern lights energy.
Landvernd kemur í heimsókn á bæjarskrifstofuna og kynnir vistasktursherma, allir velkomnir! Lestu hér um vistakstur!