Leita








Málaflokkar fyrir Staðardagskrá 21

Valdir hafa verið 12 málaflokkar sem vinna á eftir við gerð áætlunar í anda Staðardagskrá 21. Á næstunni verða haldnir fundir með íbúum, atvinnurekendum, forstöðumönnum félagasamtaka og fleira. Aðaláhersla við gerð áætlanarinnar er samráð við íbúa. Við gerð áætlunarinnar verður staða hvers málaflokks skoðuð, markmið sett og útbúin verkefnaskrá. Flokkarnir eru eftirtaldir:

Samgöngur (göngu- og hjólastígar, vegir til nágrannasveitarfélaga, alm. Samgöngur)

Atvinnulíf (uppbygging nýrra og gamalla fyrirtækja, atvinnutækifæri, nýsköpun, frumkvöðlar, þjónusta og fl.)


Ferðaþjónusta (menningar- og náttúrutengd ferðaþjónusta, afþreying, tjaldvsvæði, gisting, þjónusta o.fl.)

Umhverfisásýnd (ásýnd bæjarins, opinberra bygginga, opinna svæða, iðnaðarsvæðis, garða, húsa og lóða í einkaeigu o.s.frv.)


Tómstundir- og æskulýðsmál
(félagasamtök, forvarnir, félagsstarf fyrir unga sem aldna o.fl.)

Uppgræðsla og ræktun (t.d. heiðin, gryfjur og opin svæði, gróðursetning á útivistarsvæðum, ræktun í einkagörðum, opnum svæðum, Skrúðgarði við Bræðraborg o.fl.)

Útivist (möguleikar, svæði, afþreying, aðgengi o.fl.)

 

            Skipulagsmál (skipulag byggðar, atvinnusvæðis, opinna svæða,útivistarsvæða)

 

Umhverfi og ásýnd fyrirtækja (umgengni, frágangur, umhverfisstefna fyrirtækja)

 

Hafið og fjaran (mengun, ásýnd, nýting, fræðsla um mikilvægi hafs og fjöru)

 

Endurvinnsla (úrgangur frá heimilum, stofnunum og fyrirtækjum)

 

Fráveitumál (staða mála og leiðir til úrbóta)

 

 

 

 

 



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta