Endurvinnsla
Endurvinnsla og endurnýting!
- Með því að flokka sorpið okkar og skila til endurvinnslu stuðlum við að betra umhverfi.
- Fernur, dagblöð, plastílát, bylgjupappi, glerkrukkur og fleiri hlutir hljóta nýtt líf í endurvinnslunni í stað þess að þeim sé eytt á óumhverfisvænni máta.
- Íhugum notagildi hluta og veltum því fyrir okkur hvort hægt sé að endurnýta í stað þess að henda.
- Hugsum okkur tvisvar um áður en við kaupum vörur sem við þurfum ekki á að halda og minnkum þannig sorpmagn frá heimili okkar.
- Íhugum endingartíma vörunnar og forðumst einnota hluti sem hafa stuttan líftíma.
-Veljum vörur í endurvinnanlegum umbúðum og forðumst mikið af óþarfa umbúðum og plasti utan um vörurnar okkar.



Gáma fyrir fernur og dagblöð er að finna á plani bensínstöðvar Esso í Garðinum.
Smelltu hér til að skoða endurvinnsluferli ferna og dagblaða.
Hægt er að skila rafhlöðum til endurvinnslu í Samkaupum, Garði.
Smelltu hér til að fræðast um rafhlöður og áhrif þeirra á umhverfið.
Útrunnum lyfjum skal skila í apótek til förgunar.
Gámasvæði Kölku er opið fyrir almenning alla virka daga frá kl. 13 - 19 en frá kl. 08 - 17 fyrir fyrirtæki.
Fróðlegar vefsíður um endurvinnslu:
http://www.kalka.is http://www.urvinnslusjodur.is/
http://sorpa.is/ http://gamur.is/