Dýrahald
Ábending til hundaeigenda í Garði
Umhverfisnefnd hafa borist athugasemdir varðandi umgengni hundaeigenda við göngustíga bæjarins og þá sérstaklega við Klapparás og Kambinn. Vekja skal athygli á því að hundaeigendum er skylt að hreinsa upp eftir hunda sína og hafa poka undir hundaskít meðferðis þegar hundar eru viðraðir. Sjá nánar í Samþykkt um hundahald á Suðurnesjum og á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, www.hes.is. Einnig er vert að taka fram að lausaganga hunda er bönnuð og eingöngu er leyfilegt að hleypa hundum lausum á auðum og óbyggðum svæðum fjarri íbúabyggð.
Umhverfisnefnd hvetur alla hundaeigendur sem og aðra íbúa til þess að ganga vel um umhverfið og hreinsa eftir sig rusl eða annað sem ekki er til prýði í náttúrunni.
Góðar kveðjur,
Umhverfisnefnd Garðs.
Kattahald - Samþykkt frá 3. mars 2004
Hundahald - Vefur Heilbriðiseftirlits Suðurnesja