Umhverfismál
Hér er hægt að finna ýmsar upplýsingar og fróðleik sem viðkemur umhverfinu okkar.
Í Garði er starfandi umhverfisnefnd og fundargerðir hennar má nálgast hér.


Unnið er að umhverfismálum í Garði og í þriggja ára áætlun Sveitarfélagsins fyrir árin 2007-2010 koma fram nokkur markmið sem stefnt er að á tímabilinu.
Mörkuð verður skýr umhverfisstefna þannig að mögulegt
verði að vinna að markmiðum Staðardagskrár 21 . Leitað
verður eftir aðstoð hjá ráðgjafa Sambands íslenskra
sveitarfélaga varðandi þetta verkefni.
Unnið verður að áætlanagerð og formlegri samþykkt Staðardagskrár 21 og
mótun umhverfisvæns samfélags þar sem á öllum sviðum er unnið að
betrumbættu umhverfi.
Samstarf við leik- og grunnskóla varðandi umhverfismál verður aukið og
skapaðir nýir möguleikar á því sviði. Lagður verður grundvöllur fyrir
fræðslu og öflugu starfi á sviði umhverfismála sem stuðlar að bættri
umhverfisvitund ungu kynslóðarinnar.
Vorið 2007 var Gerðaskóla og Gefnarborg afhentur skrúðgarðurinn Bræðrarborg til
útikennslu og útivistar. Með verkefnavinnu og almennri umhirðu á
svæðinu fá börnin tækifæri til að upplifa náttúruna í sínu nánasta umhverfi
og jafnvel öðlast ábyrgðartilfinningu gagnvart því.
Sett hefur verið á laggirnar nefnd sem vinnur að skipulagningu verkefna og nýtingu á garðinum en í nefndinni sitja fulltrúar skólanna og formaður umhverfisnefndar.
