Leita








Sorphirða

Sorp frá heimilum er hirt á 10 daga fresti. Hvert heimili hefur fengið eina 240 l tunnu., mögulegt er að fá aukatunnur.
Æskilegast er að staðsetja sorpílát í innbyggðum sorpgeymslum, en að öðrum kosti er nauðsynlegt að festa þau tryggilega, þó þannig að auðvelt sé fyrir sorphirðumenn að nálgast þau. Helst skal koma sorpílátum fyrir götumegin við hús og þannig, að leiðin að þeim sé greið og auðvelt sé að aka þeim að götu. Á vetrum ber húseigendum að hreinsa snjó frá sorpgeymslum og þeirri leið sem flytja þarf sorpílát um innan lóðar.

Það sem má og má ekki fara í sorptunnuna
Í sorptunnur má eingöngu setja heimilissorp. 
Úrgang skal flokka og endurnýta eins og kostur er.
Óheimilt er að setja garðaúrgang, múrbrot, jarðefni eða grjót í sorptunnur.  Garðaúrgang skal jarðgera eða skila á endurvinnslustöð Sorpu eða á aðra móttökustaði fyrir óvirkan úrgang sem hafa til þess starfsleyfi.
Óheimilt er að setja spilliefni, lyf eða annan hættulegan úrgang í sorptunnur. Úrganginum skal skila á endurvinnslustöð Kölku eða til aðila sem hefur starfsleyfi til móttöku á spilliefnum.
Óheimilt er að setja timbur, brotamálm og annan grófan úrgang í sorptunnur. Úrganginum skal skilað á endurvinnslustöð Kölku eða til brotamálmsfyrirtækja.

Sorphirðugjald pr.tunnu  kr. 9.765,-
Sorpeyðingargjald  kr. 26.460,-

Hefur þú yfir einhverju að kvarta vegna sorphirðu:
Athugasemdir vegna sorphirðu

Kalka, gáma- og sorpeyðingarstöðin í Helguvík
Opnunartími móttökustöðvarinnar fyrir fyrirtæki 
Opnunartími Gámastöðvarí Helguvík fyrir íbúa

Heimasíða Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja -  Kalka

Gjaldskrá Kölku fyrir stofnanir og fyrirtæki

Gjaldskrá á endiurvinnslustöðvum Kölku í Vogum,Grindavík og Helguvík

Almenn gjaldskrá fyrir spilliefni

Gjaldskrá fyrir spilliefni og önnur skilgreind efni frá verktökum Úrvinnslusjóðs

Umhverfisstofnun
Meira um sorp og umhverfið okkar á vef Umhverfistofnunar http://www.ust.is/

 



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta