Leita








Saga tónlistarskólans

Saga tónlistarskólans
Allt byrjaði þetta þegar tvær ungar konur hér í Garðinum þær Edda Karlsdóttir og Kristjana Kjartansdóttir tóku sig saman um að kanna möguleika á að stofna tónlistarskóla í Gerðahreppi svo að börn og unglingar gætu stundað tónlistarnám í Garðinum.

Þær leituðu ráða hjá frændum sínum þeim Svavari Árnasyni og Jóni Ásgeirssyni um hvað þyrfti að athuga í byrjun. Þar kom fram að best til árangurs væri að stofna tónlistarfélag sem síðar stæði að tónlistarskóla. Strax kom fram mikill áhugi fyrir þessu og var boðið til stofnfundar 26. febrúar 1979.  Á fundinn mættu 22 fullorðnir og 6 unglingar. Stofnskrá félagsins var haldið opinni til 15. mars og voru stofnfélagar þá orðnir 60.

Í fyrstu stjórn voru kosnir, Edda Karlsdóttir formaður, Kristjana Kjartansdóttir gjaldkeri, Aldís Jónsdóttir ritari, Kristín Guðmundsdóttir og Jóna Hallsdóttir meðstjórnendur.
Fór nú mikill annatími í hönd hjá nýkjörinni stjórn, því að mörgu var að hyggja. Húsnæði fékkst leigt gegn vægu gjaldi hjá Matthíasi Oddssyni í Akurhúsum.

Tónlistarskólinn var stofnaður 15. september árið 1979 en settur 21. september sama ár í Akurhúsum. Í fyrstu var Tónlistarskólinn í Garði útibú frá Tónlistarskólanum í Keflavík.  Skólastjóri var Herbert H. Ágústsson.  Umsjónarkennari var ráðin Aldís Jónsdóttir ein af stofnendum félagsins en hún lést 3. Júlí 1982.  Sigurður Egill Garðarsson kenndi pianó og Þórarinn Sigurbergsson var stundakennari á gítar.  Nemendur urðu 63.

Edda Karlsdóttir veitti félaginu formennsku til ársins 1983 þá tók séra Guðmundur Guðmundsson við og var hann formaður til ársins 1987.  Sólveig Björk Gråns gegndi starfi formanns frá 1987 - 1995 en þá tók við Jóna Sigurðardóttir.
Árið 2001 tók sveitarfélagið við öllum rekstri skólans af tónlistarfélaginu. Herbert gegndi skólastjórastöðunni til ársins 1985 þá Jónína Guðmundsdóttir til ársins 1989, Mínerva Haraldsdóttir til 1995, Gróa Hreinsdóttir til 1998, síðan Hjördís Einarsdóttir, Guðmundur Sigurðsson til 2000, Sigurður Sævarsson til 2002 en starfandi skólastjóri er Eyþór Ingi Kolbeins.

Til baka



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta