Leita








Grunnskóli

Grunnskólinn Gerðaskóli,
Garðbraut 90 250 Garður
Skiptiborð 422 7020, fax 422 7384
Símar og netföng hjá kennurum og starfsfólki
Vefur: http://www.gerdaskoli.is  

Saga Gerðaskóla

Gerðaskóli er næstelsti starfandi skóli landsins, hefur starfað óslitið síðan 1872 þegar hann var stofnsettur af séra Sigurði Sivertsen, sem þjónaði Útskálaprestakalli í 50 ár. Elsta bygging skólans er frá 1911.
Í skólanum eru um 220 nemendur í 10 bekkjardeildum og um 35 kennarar og annað starfsfólk. Unnið er af kappi við að gera Gerðaskóla að enn betri skóla fyrir alla sem hann sækja. Þar er starfað samkvæmt skilgreiningu um skóla án aðgreiningar sem felur í sér viðurkenningu á einstaklingsmun og rétti hvers nemanda að stunda nám innan félagsheildar bekkjarins. Leitast er við að búa öllum uppbyggjandi og öruggar aðstæður til náms og þroska. náið samstarf er milli Gerðaskóla og leikskólans Gefnarborgar.

Séra Sigurður Brynjólfsson Sívertsen stóð fyrir stofnun barnaskóla í Gerðum, árið 1871.  Aðdragandinn að stofnun skólans var nokkuð langur, en það var fyrst upp úr 1860, að séra Sigurður fór að ræða við héraðsbúa um stofnun hans. Presturinn lagði sjálfur fram fé til byggingar skólans auk þess sem hann gekk á undan góðu fordæmi í því að safna fé til skólans bæði til byggingarinnar og til þess að hægt væri að halda skólastarfinu áfram.  Kaupmenn í Keflavík gáfu fé, en mestu munaði það sem bændur hér gáfu.  Það vildi svo vel til að vel áraði, svo að flestir gátu gefið eitthvað fé, og svo unnu margir kauplaust við bygginguna.  Veturinn 1871-72 gengst Sigurður fyrir því að bændur í Garði hlaði veggina í skólann í Gerðum.  Voru það heljar þykkir veggir úr grjóti, utan og innan og sandur á milli.  Auk aðalhússins voru byggð baðstofa með þriggja rúma lengd, þrjú rúm hvoru megin, var hún upphaflega ætluð börnum sem sóttu skólann lengra að.  Aftan við hana var feyki mikið eldhús handa skólanum. Þessar byggingar stóðu þar sem nú heitir í Fjósum eða Skúlhúsum.  Húsaskipan var svo háttað, að tvær kennslustofur voru niðri og loft uppi til íbúðar fyrir kennara, en efst var hanabjálki.  Var byggingunni lokið á öndverðu hausti árið 1872. 

Gerðaskóli var svo settur 7. október 1872.  Var mikið fölmenni þar saman komið.  Hélt séra Sigurður þar skörulega ræðu og skýrði þar meðal annars frá tilætlan sinni og framkvæmdum.  Til kennara hafði séra Sigurður valið Þorgrím Þ. Guðmundsson.  Prestur fékk kennara í hendur bók þá, er enn er til hér í skólanum og heitir Dagbók barnaskólans í Gerðum.  Í þá bók skyldi rita nöfn allra þeirra barna er í skólann gengu, lengri eða skemmri tíma, svo og skýrslu um kennslu hans og yfirheyrslur barnanna að hverri viku liðinni og svo vitnisburð um framför barnanna, gáfur og siðferði.

Nemendur fyrsta skólaárið voru 15 talsins.  Námsgreinarnar sem kenndar voru í Gerðaskóla fyrstu árin voru, kristindómur (kver og biblíusögur), lestur (nýja testamentið, lestrarbók), skrift (eftir skrift kennarans), réttritun, reikningur.

Skólinn stóð til aprílloka fyrstu tvö árin, eftir það ákvað nefndin að skólinn skyldi vera í tveimur  deildum og börnum skipt eftir aldri, kunnáttu og þroska, og skyldi skóla vera lokið 14. mars og var þá ákveðið að kennarar skildu vera tveir og stóð svo lengi.

Hætt var að nota bygginguna til skólahalds árið 1887.  Síðar var húsið notað sem samkomuhús um áraraðir.  Frá 1887 til 1890 var skólinn í leiguhúsnæði í Miðhúsum en fram til 1911 var svo skólinn til húsa að Útskálum og var byggt timburhús yfir hann og stóð það yst á Útskálahólnum. Árið 1910 var svo hafist handa við byggingu skólahúss í Gerðalandi, á stað er skólinn stendur enn í dag.  Kennsla hófst 5. okt. 1911.

Árið 1941 var hafist handa við viðbyggingu skólans og var hún tekin í notkun 1947, en var stækkað árið 1966 og var því lokið 1969.  Árið var bætt við unglingadeild en til þessa hafði bara verið barnadeild og þurftu þá allir unglingar að sækja skóla í Keflavík.  Fjöldinn allur af skólastjórum hafa starfað við skólann og eru þar á meðal Sveinbjörn Árnason, Sveinn Halldórsson, Þorsteinn Gíslason, Jón Ólafsson , Eiríkur Hermannsson og Einar Valgeir Arason. 

 

 



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta