Leita








Menntun og fræðsla

Markmið skólastarfs er að stuðla að persónulegum og félagslegum þroska allra
nemenda og gera þá færa um að taka á ábyrgan og skapandi hátt þátt í síbreytilegum
heimi utan skólans. Lögð verður áhersla á viðfangsefni sem stuðla að gagnrýnni
hugsun, sjálfstæði og ábyrgð, námstækni, skipulögðum vinnubrögðum og góðri
umgengni ásamt samvinnu og samhjálp. Í kjölfar skólaþings verður skólastefna Garðs
mótuð og ytra mat skólastarfs og umbótaáætlanir unnar af fagaðilum.

Yfirstjórn skólamála er í höndum skólanefndar sem starfar í umboði sveitarstjórnar. Undir Skólanefnd falla málefni grunnskóla, tónlistarskóla og leikskóla. Sveitarfélagið er með þjónustusamning við Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar um faglega þjónustu við Gerðaskóla. Fræðsluskrifstofa fylgist með framkvæmd skólahalds og sér um áætlanagerð og almennt eftirlit. Sveitarfélagið Garður er, líkt og önnur sveitarfélög á Suðurnesjum, aðili að samstarfi um rekstur Fjölbrautarskóla Suðurnesja.     

Framhaldsskóli 
Fjölbrautaskóli Suðurnesja er skóli Suðurnesjamanna og nemendur hans koma frá öllum
byggðarlögum svæðisins. Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum (Garður, Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði,  og Vogar) reka skólann í samstarfi við ríkisvaldið.

 
Grunnskóli
Einn grunnskóli, Gerðaskóli, er í sveitarfélaginu.  Starfað er samkvæmt hugmyndafræði um skóla án aðgreiningar sem felur í sér viðurkenningu á einstaklingsmun og rétti hvers nemanda að stunda nám innan félagsheildar bekkjarins. Áhersla er lögð á að vel menntaðir kennarar starfi við Gerðaskóla. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að mæta þörfum fatlaðra nemenda við skólann og að þar sé góð sérkennsludeild. Náið samstarf er milli Gerðaskóla og leikskólans Gefnarborgar en markmið með samstarfinu er meðal annars það að brúa bilið milli skólastiganna tveggja. Boðið er upp á hádegismat í mötuneyti. Nemendur greiða kr. 183 á máltíð. Sveitarfélagið niðurgreiðir máltíðina um helming. Lögð er áhersla á hollustueftirlit og að nemendur fái hollan og nægan mat.  Lögð hefur verið á það rík áhersla að veita öllum börnum á skólaaldri góða þjónustu. Í skólanum er skóladagvist. Á heimasíðu Gerðaskóla www.gerdaskoli.is er að finna allar helstu upplýsingar. 
  
 
Leikskóli
Einn leikskóli, Gefnarborg, er í sveitarfélaginu. Þar dvelja 80 börn á aldrinum 2-6 ára
á þremur deildum. Í leikskólanum er boðið upp á morgunmat, hádegismat og
síðdegishressingu. Hægt er að fá vistun í 4 – 9,5 klst. á dag. Unnið er að því að elsti árgangur leik Gjaldskrá 2012 Leikskóli

Dagvistun:
Sveitarfélagið greiðir 27.200 kr. umönnunarbætur til foreldra barna á aldrinum 9 mánaða til 2 ára. Greiðsluna geta foreldrar nýtt til niðurgreiðslu dagvistunar Gjaldskrá 2012 Umönnunarbætur 

Tónlistarskóli
Tónlistarskóli er starfandi í sveitarfélaginu.

Boðið er upp á kennslu á hin ýmsu hljóðfæri t.d. trompet, básúnu, horn, túbu,
þverflautu, blokkflautu, gítar, bassa, slagverk, píanó og fiðlu. Einnig er kenndur
söngur, samsöngur og samspil auk tónfræðigreina Gjaldskrá 2012 Tónlistarskóli

Vinnuskóli
Vinnuskóli er starfandi á sumrin og eiga nemendur í 7. til 10. bekk grunnskólans kost á því að fá vinnu hjá sveitarfélaginu.  Nemendur vinnuskólans fá fræðslu um
vinnusiðfræði og mikilvægi þess að hirða vel um umhverfi bæjarins og haldin eru námskeið fyrir flokkstjóra m.a. um samskipti og áherslur. Starfsemi vinnuskóla tekur mið af því mikilvæga uppeldisstarfi sem þar ferfram. Nánari upplýsingar eru veittar hjá skrifstofu sveitarfélagsins.



                 



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta