Útskálakirkja
Útskálum 250 Garður
sími 422 7060
Sóknarprestur
Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson
Presthúsum, Skagabraut 30
Sími 4512655
Viðtalstímar á þriðjudögum milli kl: 10-12 í safnaðarheimilinu Sandgerði og á fimmtudögum milli kl: 10-12 í safnaðarheimilinu Sæborgu, Garði og eftir samkomulagi
Farsími 895 2243, fax 4237350,
tölvupóstur srsgs@simnet.is
Safnaðarheimili
Hefðbundnar guðsþjónustur eru annan hvern sunnudag í Útskálakirkju og tíðar um hátíðir. Helgistundir fara fram á hjúkrunarheimilinu Garðvangi síðdegis hvern messudag og hafa kórar prestakallsins annast söng fyrir heimilisfólkið.
Safnaðarstarf Útskálasóknar
Meginmarkmið og grundvöllur alls lifandi safnaðarstarfs er fólgið í boðun fagnaðarerindisins um Jesúm Krist. Í því felst samfélag um orð Drottins og borð, kærleikssamfélag bænarinnar og líknarþjónustu.
Safnaðarstarf Útskálasóknar er í meginatriðum sem hér segir:
Helgihald
Hefðbundnar guðsþjónustur eru annan hvern sunnudag í Útskálakirkju og tíðar um hátíðir. Sama sunnudag fer fram helgihald í Hvalsneskirkju.
Helgistundir fara fram á hjúkrunarheimilinu Garðvangi síðdegis hvern messudag og hafa kórar prestakallsins annast söng fyrir heimilisfólkið.
Kirkjuskólinn
Á haust-, vetrar- og vormánuðum er kirkjuskólinn, barnastarf kirkjunnar, starfræktur annan hvern laugardag kl. 14 í safnaðarheimilinu Sæborgu í Garði. Halldór Gunnar Halldórsson ber hita og þunga af barnastarfinu ásamt sóknarpresti og útvöldum aðstoðarmönnum. Boðið er upp á kaffi fyrir fullorðna en ávaxtasafa og meðlæti fyrir börnin.
NTT- starfið
er skammstöfun fyrir níu til tólf ára starf sem hefur verið á þriðjudögum kl. 17 í hverri viku í safnaðarheimilinu Sæborgu. (Tímasetningin getur þó verið breytingum háð á hverju ári) Þetta eru samveru- og ánægjustundir ætlaðar öllum í prestakallinu sem telja sig of gamla fyrir Kirkjuskólann og einnig þeim sem mæta í hann og eru orðnir níu ára. Krakkarnir fá að syngja, leika og njóta sín ásamt því að fá eitthvað til að væta kverkar og þagga í görnum. NTT - starfið annast Kristjana Kjartansdóttir kennari og hefur hún sinnt því af mikilli alúð og þekkingu.
Kórastarf
Kóræfingar hafa verið í safnaðaðarheimilinu Sæborgu á þriðjudagskvöldum kl. 20. Í þjónustu kirkjunnar hefur valist fær organisti, Steinar Guðmundsson. Fólk er hvatt til að kynna sér starfsemi kirkjukórs Útskálakirkju. Hér er um skemmtilegan félagsskap að ræða og ein vísasta leiðin til að kynnast íbúum byggðarlagsins.
Eldri borgarar
Rétt er að benda á félagsstarf eldri borgara, Heimavarnarliðið. Náin samvinna hefur verið á milli kirkjunnar og Heimavarnarliðsins. Fundir eldri borgara eru einu sinni í viku. Samverustundirnar eru notaðar til ýmissa athafna og verka, svo sem skrafs og ráðagerða, spilamennsku, útsaums, prjónaskapar, málunar svo eitthvað sé nefnt.
Á degi eldri borgara efnir kirkjan ásamt Heimavarnarliðinu og eldri borgurum í Sandgerði til árlegrar vorferðar sem mælst hefur vel fyrir, vonandi verðu enginn breytin þar á.
Alfa námskeið
Hafa verið haldin í prestakallinu bæðið fyrir og eftir áramót. Þetta eru praktísk, trúarstyrkjandi námskeið um grundvallaratriði kristinnar trúar. Námskeiðið er haldið í notalegu og afslöppuðu umhverfi og er kennslan sett fram á einfaldan og skiljanlegan hátt.
Námskeiðin standa í tíu vikur, eitt skipti á viku og byggjast þau upp á sameiginlegri máltíð, stuttri samverustund, fyrirlestri og umræðum. Fólk er hvatt til að kynna sér þessi uppbyggilegu námskeið sem hafa farið sigurför bæði hérlendis og erlendis.
Kirkjukór Útskálasóknar
Kirkjukór Útskálakirkju hefur starfað í fjölda mörg ár, en formlega var hann stofnaður 1946 af þáverandi söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar, Sigurði Birkis. Kórfélagar voru upphaflega 22 og var Auður Tryggvadóttir söngstjóri og organisti. Hún stjórnaði kórnum í 40 ár, lengst allra í þessu starfi, enda þótti öllum í kórnum afar vænt um Auði. Síðan hafa margir organistar starfað við kirkjuna, lengst 9 ár, 6 ár og allt niður í 1 ár, allir mjög hæfir í sínu starfi. En skýringin á því af hverju sumir stjórnendur hafa staldrað svo stutt við er að margir hafa farið í meira nám erlendis. Kirkjukór er ætlað að annast söng við guðsþjónustur, skírnir, giftingar og útfarir. Einnig höfum við tekið þátt í kóramótum í Kjalarnesprófastdæmi. Þá eru aðventutónleikar orðnir árviss viðburður og eru þeir sameiginlegir með Hvalsness- og Útskálasókn, enda sami kórstjóri með báða kórana.
Kórstarf er krefjandi en jafnframt gefandi og mjög góður félagsskapur. En því miður hefur gengið illa á seinni árum að fá fólk í kórinn og höfum við því orðið að fá fólk úr Sandgerði og Keflavík sérstaklega við útfarir og á hátíðum, því það er ekki spurning að allir vilja góðan kór í kirkjunni.
Kæru Garðmenn, höfum þann metnað gagnvart kirkjunni okkar að efla góðan söng. Endilega komið og prófið, það verður tekið vel á móti öllum. Því fleiri sem eru í kór, því meiri möguleikar á að gera margt skemmtilegt. Söngurinn göfgar og gleður!
Með kærri kveðju,
Kirkjukór Útskálasóknar
Nánari upplýsingar um kórstarfið veitir Dagbjört 422 730.
Um Útskálakirkju
Kirkjan að Útskálum var reist árið 1861 að frumkvæði sóknarprestsins síra Sigurðar B. Sívertsen (1808-1887). Árið 1907 heyrðu Hvalsnes-, Njarðvíkur- og Kirkjuvogssóknir til Útskálaprestakalls og hélst sú skipan fram til ársins 1952.
Útskálakirkja er byggð úr timbri og járnvarin. Árið 1975 var forkirkjan stækkuð og komið þar fyrir snyrtiherbergjum, geymslu og skrúðhúsi. Að innan er kirkjan máluð og skreytt af Áka Granz, málarameistara, hann skýrði jafnframt upp gamla skrautmálningu sem nær var horfin. Prédikunarstóll kirkjunnar var keyptur úr Dómkirkjunni í Reykjavík árið 1886. Altaristaflan sýnir boðun Maríu, stór mynd, gefin kirkjunni árið 1878.
Kirkjan var vígð 1863. Formsmiður af henni var Einar Jónsson frá Brúarhrauni (1818-1891). Árið 1975 var forkirkjan stækkuð. Að innan er kirkjan máluð og skreytt af Áka Gränz, málarameistara. Hann skýrði jafnframt upp gamla skrautmálningu, sem nær var horfin. Kirkjan er af yngri turngerð og er friðuð.
Altaristaflan er eftir útlendan málara ogs ýnirboðun Maríu. Predrikunarstóllinn vara ð öllum líkindum upprunalega í Dómkirkjunni í Reykjavík. Skírnarfonturinn er eftir Ríkharð Jónsson.
Séra Sigurður B. Sívertsen (1808-1887) var prestur í Útskálum í tæplega hálfa öld. Hann vann að mörgum framfaramálum, s.s. jarðabótum og húsbyggingum. Hann lét m.a. byggja kirkjuna, sem nú stendur, en þekktastur er hann fyrir Suðurnesjaannál, sem hann skrifaði.
Kirkja hefur líklega verið á Útskálum frá fyrstu tíð. Hennar er fyrst getið í kirknaskrá Páls biskups frá um 12000. Þá var kirkja einnig á Kirkjubóli, en þeirrar kirkja er síðast getið í heimildum frá 14. öld. Dýrlingar kirkjunnar í kaþólskri tíð voru Pétur postuli og Þorlákur helgi.
Einn hryggilegasti atburður sjóferðasögu Íslands tengist kirkjunni. Þann 8. mars 1685 fórust 136 á sjó, flestir af Suðurnesjum. Um nóttina rak 47 lík á lad í Garðinum og var 42 þeirra búin sameiginleg gröf í Útskálakirkjugarði. Það er talið að aldrei hafi jafn margir verið jarðaðir á sama degi frá sömu kirkju landsins.