Íþrótta og æskulýðsmál

Ljóst er að íþróttaiðkun og vandað tómstundastarf er ein besta forvörn sem völ er á. Viðfangsefni sem mæta
þörfum hvers og eins og ýta um leið undir heilbrigðan lífstíl, styrkja sjálfsmynd barna og unglinga. Það eitt
hefur forvarnargildi og hjálpar þeim við að mæta öðrum áskorunum í lífinu.
Félagsmiðstöð er í sveitarfélaginu en hún starfar í Sæborgu. Hún er opin unglingum allt skólaárið en lokuð á sumrin. Starfsmenn eru þrír, þ.a. tveir tómstundaleiðbeinendur í hlutastarfi.
Íþróttamiðstöðin í Garði hefur upp á að bjóða fullbúið íþróttahús fyrir alla íþróttaiðkun, keppnir, sýningar og ráðstefnur. Þar eru 25 metra sundlaug og heitir pottar, íþróttasalur með löglegum völlum fyrir allar almennar greinar, þrekssalur, ljósabekkir o.fl.
Eini 18 holu golfvöllurinn á Reykjanesi er í Leiru í Garði en völlurinn er rómaður fyrir góða aðstöðu, frábært útsýni og friðsælt umhverfi við sjávarsíðuna. Völlurinn hefur um árabil þótt einn besti golfvöllur landsins auk þess sem þar er að finna eina erfiðustu golfholu landsins, en það er Bergvíkin, hola 3. Í Golfskálanum er veitingaaðstaða og golfverslun.
Knattspyrnufélagið Víðir hefur starfað í Garði frá 1936 en það var stofnað af áhugasömum Garðbúum. Þar er mjög góður knattspyrnuvöllur sem ber nafnið Garðsvöllur. Gott æfingasvæði er á Garðskaga sem samsvarar 4 knattspyrnuvöllum. Við Gerðaskóla er upphitaður gervigrasvöllur.
ÍÞrótta- og tómstundafulltrúi Garðsins.
Guðbrandur J. Stefánsson
gudbrandurjs@svgardur.is
849-8385