Húsaleigubætur
LEIÐBEININGAR VEGNA HÚSALEIGUBÓTA
UMSÓKNARFRESTUR
Umsókn skal hafa borist í síðasta lagi. 16. dag fyrsta greiðslumánaðar og ef umsókn berst seinna verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar. Sé umsókn ófullnægjandi eða henni fylgja ekki nauðsynleg gögn koma bætur ekki til greiðslu í næsta mánuði á eftir. Þá skal sveitarfélag gera umsækjanda grein fyrir því sem ábótavant er og gefa honum kost á að bæta úr því innan tveggja mánaða. Réttur til bóta miðast þá við umsóknartímann, berist fullnægjandi göng innan gefins tveggja mánaða frests. Það er mikilvægt að vita að til að tryggja sér bótarétt í mánuðinum sem upphaf leigu er í, þarf umsókn að berast fyrir 16. þess mánaðar. Ef öll fylgigögn eru ekki tilbúin fyrir 16. dag mánaðarins er mikilvægt að leggja inn umsóknareyðublaðið til að tryggja sér bótaréttinn.fyrir mánuðinn.
GILDISTÍMI UMSÓKNAR
Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert ár og gildir umsóknin til 16. mars. Umsækjendur þurfa að endurnýja umsókn sína fyrir 16. mars ár hvert til þess að greiðslur falli ekki niður.
LENGD HÚSALEIGUSAMNINGS
Það girðir fyrir rétt til húsaleigubóta ef leigusamningur er til skemmri tíma en sex mánaða.
TÍMABUNDNIR HÚSALEIGUSAMNINGAR
Greiðslur húsaleigubóta falla niður þegar tímabundnum húsaleigusamningi lýkur nema umsækjandi skili inn nýjum samningi. Berist ekki nýr samningur innan tveggja mánaða frá lokadegi samnings fellur umsóknin úr gildi.
Húsaleigusamningnum þarf að þinglýsa hjá Sýslumanni og er það gert í því sveitarfélagi sem húsnæðið er í.