Litir: E B H S
Leturstærð: Stór Stærri Stærst
Þjónusta við fatlaða fyrir utan almenna félagsþjónustu er einnig boðið upp á liðveislu og ferðaþjónustu.Öryrkjar fá niðurfellingu eða afslátt af fasteignagjöldum búi þeir í eigin húsnæði og fá einnig að fara endurgjaldslaust í sund. Öryrkjum stendur einnig til boða heimilishjálp.Liðveisla er veitt skv.lögum um málefni fatlaðra nr.59/1992. Þeir sem eiga rétt á liðveislu eru fatlaðir einstaklingar sem eru 6 ára og eldri. Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun. Hér er hægt að nálgast ýmsar umsóknir sem varða velferðarþjónustu:Umsókn um akstur fyrir fatlaða (Til útprentunar)Umsókn um heimaþjónustu (Til útprentunar)Umsókn um húsaleigubætur (Til útprentunar)Umsókn um liðveislu fyrir fatlaða (Til útprentunar)Fleiri upplýsingar á fjölskylduvefnum og á vef Öryrkjabandalagsins:http://www.fjolskylda.is/fjolskyldan/oryrkjar/fatladir/http://www.obi.is/
Skráðu þig á póstlistann