Leita








Lausar lóðir

Þú getur sótt umsókn um lóð með því að smellahér.  ( pdf skjal til útprentunar)

  • Einbýlishúsalóðir:

    Lóðir sem verða til úthlutunar í febrúar eru afmarkaðar með rauðu á uppdrættinum hér að neðan.
      Gert er ráð fyrir að þær verði byggingarhæfar í apríl 2008.
  • Deiliskipulag.
  • Asparteigur, Brimklöpp og Fjöruklöpp.
  • Skipulags- og byggingarskilmálar.
  • Lóðum verður úthlutað úr öðrum götum en merktar eru á uppdrættinum ef eftirspurn verður meiri.  Lóðirnar eru um 900 fermetrar nema endalóðirnar, þær eru allt að 1170 fermetrar.  Byggingarleyfis- og gatnagerðargjöld erum um 2.4 milljónir króna fyrir 900 fermetra lóð.  Byggingarlandið er mjög gott, grunnt er niður á burðarhæfan jarðveg og því ódýrara en ella að byggja í hverfinu.  Hverfið skiptist í Teiga og Klappir og þvert í gegnum hverfið gengur gatan Klapparráðs.  Við Teigana eru parhúsalóðir og einbýlishúsalóðir við Klappirnar.  Við efstu göturnar, Ægisklöpp, Ölduklöpp og Víðiteig verða tveggja hæða hús með frábæru útsýni yfir Faxaflóann.  Annars staðar í hverfinu er gert ráð fyrir húsum á einni hæð.  Í hverfinu miðju er gert ráð fyrir leiksvæði og opnu svæði til útivistar.  Hverfið er mjög vel staðsett í nálægð við skóla, íþróttasvæði og þjónustukjarna bæjarins.  Alls eru í hverfinu 115 einbýlishúsalóðir og 40 parhúsalóðir eða samtals 195 íbúðir.  Ef marka má eftirspurn mun hverfið byggjast hratt upp. 
  • Úthlutunarreglur.


    Einbýlishús:

    Brimklöpp 5
    Brimklöpp 6
    Brimklöpp 7
    Brimklöpp 9
    Brimklöpp10

    Fjöruklöpp 9
    Fjöruklöpp 10
    Fjöruklöpp 11
    Fjöruklöpp 12
    Fjöruklöpp 13




 

 

 

 



 

 

 

 

 

 



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta