Leita








Varir og lendingar

Varir (lendingar og uppsátur)
Meðfram sjávarströndinni í Garði frá Garðskaga að Rafnkelsstöðum,eru 16 varir sem allar eru gerðar af mannahöndum róið var úr þeim öllum stærðst er Gerðavör sem var tvískipt þar mátti setja upp 20 báta.
Utasta lendingin heitir Lambastaðavör.Þar var þrautarlending með lágum sjó-um fjöru-í norðanátt.
Næst er Lónið þar eru fjórar varir:Lónshúsavör,Miðvör og Akurhúsavör.
Þá kemur Króksós,þar vestast er Útskálavör,þá Miðhúsavör og Bakkavör eða Króksvör.Fyrir framan Króksós er Naustarif. Þar var rutt gegnum rifið og siglt inn til lendingar. Austan við rifið er flúð,sem nefnist Manntapaflúð á árum áður fórust þar mörg skip ásamt áhöfnum.
Næsta lending er Gerðavör,er hún innan Gerðahólma. Hún skiptist í eystri og vestari vör,siglt er inn sama sundið.
Innan Gerðavarar er Skúlhúsavör,en þar var ekki uppsátur en stundum var afla hent þar á land.Næst er Gaukstaðavör og Vararós,Í Vararós var í mirkri siglt inn eftir ljósmerkjum og var talin besta lendingin í Garði.
Í Vararós eru þrjú uppsátur, vestast er Brekkuvör,Vararvör og Kothúsavör. Innsta vörin er Kópa,þar er Meiðastaðavör og Rafnkelsstaðavör.
Flestar voru varirnar þröngar og vart árafríar.

Ef gengið er með ströndinni þá má sjá skilti við hverja vör.


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta