Kirkjuból
Kirkjuból er bær á Garðskaga á stórri á mikilli jörð. Bærinn er á Sandgerðislandi og var oft setin af hinum ýmsu höðingjum. Margar sögur eru til frá svæðinu en sá atburður gerðist vorið 1433 að hópur manna, sveinar Jóns Gerrekssonar Skálholtsbiskups, undir forustu Magnúsar nokkurs sem beðið hafði Margrétar, dóttur Vigfúsar hirðstjóra Hólms, en fengið hryggbrot við bóninni. Reiddist Magnús svo mikið að hann ákvað að brenna Margréti inni á Kirkjubóli. Hún var þó eina manneskjan sem komst úr eldinum og gat flúið. Hét hún að giftast þeim manni sem hefndi hennar. Það gerði Þorvaldur Loftsson á Möðruvöllum og fékk hann að eiga Margréti.
Árið 1550 var síðasti kaþólski biskpuinn á Íslandi tekinn af lífi. Sá sem kvað upp úrskurðinn um að biskup skyldi líflátinn hét Kristján og var umboðsmaður danska hirðstjórans á Íslandi. Í ársbyrjum 1551 fór Kristján með fjölmennu liði á Suðurnes í erindum konungs og tók sér gistingu að Kirkjubóli. Um nóttina réðust Norðlendingar að bænum fengu leyfi bóndans þar til að ráðast Kristjáni og mönnum hans og drepa þá. Voru Kristján og fylgdarmenn hans dysjaðir fyrir norðan túngarð á Kirkjubóli. Þótti þar reimt, svo að Norðlendingar fóru aftur, grófu líkin upp og hjuggu höfuðin af. Þetta þótti mönnum hin mesta smán er fréttin barst til Danmerkur og töldu að níðst hefði verið á líkunum. Leiddi þessi atburður til þess að árið eftir komu danskir hermenn að Kirkjubóli, tóku bóndann og fluttu í Straum og hálshjuggu hann þar.