Hvalir og selir
Oft má sjá hvali og seli við Garðskaga. Landselir sitja tíðum uppi á Skagaflös eða Lambarifi. Útselir sjást stundum, oftast á sundi. Garðssjór er vinsæll til hvalaskoðunar og stundum má sjá hvalina (og hvalaskoðunarbátana) frá landi í góðum sjónauka. Höfrungategundin hnýðingur er algengastur og er oft mikið fjör í dýrunum. Hrefnur sjást reglulega og hnúfubakar eru alltíðir yfir sumartímann, sérstaklega í júlí. Háhyrningar eru sjaldséðir, en þeir eru algengari við Reykjanes. Önnur spendýr sem búast má við eru minkur og hagamús. Nesið, sem Garðskagi er ysti hluti á, Rosmhvalanes, er nefnt eftir rostungnum, sem ekki sést þar lengur (Rosmhvalanes = rostunganes).
Þú getur smellt á myndirnar og fengið nánari upplýsingar.
Hvalaskoðun
Moby Dick - Höfrunga- og hvalaskoðun býður alla velkomina um borð í hvalaskoðunarskipið Moby Dick
Daglegar siglingar frá Keflavíkurhöfn með elsta hvalaskoðunarfyrirtæki landsins frá apríl til október.
Höfrungar eða hvalir sjást í um 95% af ferðum. Einnig er boðið uppá sjóstangaveiði og skemmtisiglingar. Fleytan er rúmgóð og flytur ykkur á þægilegan hátt á vit höfrunga og hvala í þeirra náttúrulega umhverfi. Sækjum gesti á hótel og aðra gististaði
Nánari upplýsingar:
Sími: 421 7777 . 800 8777 . Farsími: 896 5598 . Fax: 421 3361. Netfang: moby.dick@dolphin.is . www.dolphin.is