Leita








Hafurbjarnastaðir

Bær á Garðskaga, í Miðneshreppi.  Rétt hjá Hafurbjarnarstöðum liggur hinn mikli Skagagarður sem eitt sinn girti af Skagatána og Garðskagi dregur nafn sitt af.  Á Hafurbjarnarstöðum var kumlateigur forn sem talinn er einn af hinum merkustu sem fundist hafa hér á landi.  Var hann athugaður árið 1868 og tekin upp úr honum bein og gripir og flutt í Forngripasafnið en þar sem eftir af honum var rannsakað árið 1947.  Alls voru í teignum 9 kuml og í þeim bein 7 eða ef til vill 8 manna og hafa þau verið rannsökuð.  Einnig var mikið af beinaleifum hunda og hesta.  Allmargt gripa fannst þar, vopn, skartgripir og fleira og sennilega hefur verið þar bátskuml. 



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta