Melgresi
Melgresi (Leymus arenarius)
Melgresi eða melur (grasætt) er stórvaxin grastegund sem vex á foksöndum, vikrum og í fjörusandi. ?að er algengt í kring um landið, og er einnig víða á móbergssvæði hálendisins. Á foksandsvæðum myndar melgresið utan um sig sandhóla. Á Garðsskaga er melgresi algengt kringum sjóvarnargarðinn.