Kúmen
Kúmen (Carum carvi)
Kúmen (sveipjurtaætt) er innflutt jurt, sem hefur náð fótfestu og ílenst um sunnanvert landið, það finnst aðallega sem slæðingur í túnum. Blómin eru hvít, smávaxin og sitja í sveipum, blöðin fjöðruð. Aldin kúmensins eru notuð sem krydd í bakstur og fleira. Miklar breiður af kúmeni eru í túninu við Garðsskagavitann. Blómstrar snemma, í maí og júní.