Leita








Hrímblaðka

Hrímblaðka (Atriplex longifolia)
Hrímblaðka (hélunjólaætt) vex eingöngu í sjávarfjörum, í sandi eða möl. Hún er algeng allt í kring um landið og vex í sandi og uppreknu þangi á Garðsskaga.  Blómin eru smávaxin, rauðleit, blöðin dökkgræn eða rauðfjólublá.  Jurtin er alsett smáum, hvítum salthárum, sem gefa henni hrímgrátt yfirbragð.  Blómstrar frá júní og út sumarið.  Hélublaðka er náskyld tegund og nauðalík. 


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta