Leita








Dílaskarfur

Dílaskarfur (Phalacorax carbo)
Stór og dökkur sjófugl. Varpfuglar eru með hvíta bletti á kverk, vöngum og lærum. Ungfuglarnir eru ljósir á kviði og bringu. Að öðru leyti virðist fuglinn vera svartur. Skarfar eru góðir kafarar, en fremur þungir til flugs og fljúga oft lágt yfir sjó með langan hálsinn útréttan. Það einkennir skarfa, að standa á skerjum eða hafnargörðum með útbreidda vængi og er það kallað að messa. Lengd 80-100 cm, þyngd um 3 kg, vænghaf 130-160 cm. Dílaskarfur og frændi hans toppskarfur, sem er minni og fíngerðari (ungfuglinn dekkri), eru algengir á Suðurnesjum allt árið, en eru þó aðallega vetrargestir. Þeir sjást í tuga- eða jafnvel hundraðatali frá Stafnesi út í Garð. Skagaflösin er vinsæll setstaður skarfa. 


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta