Leita








Álka

Álka (Alca torda)
Álkan er tekin hér sem fulltrúi svartfugla, hún er oftast þeirra algengust, en í raun má búast við flestum íslenskum svartfuglum við Garðsskaga. Álka er miðlungsstór svartfugl, svört að ofan en hvít að neðan. Á veturna er hún ljósari á höfði og hálsi en á sumrin.  Lengd 37-39 cm, þyngd um 600 g, vænghaf 63-68 cm. Álkur sjást allt árið við Garðsskaga, en mjög mismargar. Aðrir svartfuglar sem sjást árið um kring eru langvía og teista. Lundi sést á sumrin og haftyrðill er óreglulegur vetargestur. 


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta