Æðarfugl
Æðarfugl (Somateria mollissima)
Stór kafönd sem heldur sig nær eingöngu á eða við sjó. Blikinn er skrautlegur, hvítur og svartur, kollan er brúnflikrótt með sérkennilegt höfuðlag. Ungir blikar eru dökkir með hvíta bringu. Biðilslátbragð blikanna á vorin er afar sérkennilegt, þeir reigja sig og teygja og „úúa“ mikið. Lengd 50-71 cm, þyngd um 2 kg, vænghaf 80-108 cm. Æðurin er algengur staðfugl við Garðsskaga og algengasti fuglinn við Rosmhvalanes á veturna, tæplega 8000 fuglar hafa sést í fuglatalningum um áramót á svæðinu Stafnes - Garður. Þegar loðnan gengur meðfram SV-landi á útmánuðum fjölgar fuglunum að mun og eru mjög stórir hópar þá útaf Garðsskaga, skipta jafnvel tugum þúsunda. Í þessum stóru hópum má gjarnan sjá æðarkónga, skrautlega ættingja æðarfuglsins sem koma frá Grænlandi.