Toppönd
Toppönd (Mergus serrator)
Mjósleginn og rennileg fiskiönd, fremur stór, með langan, mjóan gogg. Steggurinn er skrautlegur, grænn á höfði, dökkur á baki, grár á síðum, hvítur á hálsi og brúndröfnóttur á bringu. Kollan er gráleit á búk með brúnleitt höfuð. Bæði kyn með stríðan topp aftan úr hnakka og hvíta vængreiti sem eru áberandi á flugi. Afburða kafari eins og lögun fuglsins ber með sér. Lengd 52-58 cm, þyngd um 1,1 kg, vænghaf 70-86 cm. Varpfugl í Garði og víðar á Rosmhvalanesi, kollur með unga sjást bæði á tjörnum og sjó. Þær halda til á tjörnunum þangað til að þær leggur. Fáeinir tugir sjást síðan meðfram ströndinni allan veturinn.