Tildra
Tildra (Arenaria interpres)
Fremur lítill fjörufugl, skræpóttur og kvikur. Í sumarfiðri er tildran rauðbrún að ofan, með svartar rákir á höfði og bringu og hvít að neðan. Á veturna er hún öll grárri og litdaufari. Hvít bak- og vængbelti eru áberandi á flugi. Goggur er stuttur, svartur og fætur sömuleiðis stuttir, rauðir að lit. Tildran dregur nafn sitt af því háttalagi, að velta við steinum og þangi í fjörunni í leit að æti. Umferðarfarfugl, varpfuglar á Grænlandi og NA-Kanada hafa hér viðdvöl vor og haust á leið sinni til og frá varpstöðvunum og vetrarstöðvum í V-Evrópu. Lengd 22-24 cm, þyngd um 120 g, vænghaf 50-57 cm. Einn algengasti vaðfuglinn í fjörunum, stærstu hóparnir sjást á vorin. Yfir háveturinn er mergðin mismikil, frá nokkrum tugum fugla uppí á 2. þúsund á strandlengjunni Stafnes - Garður.