Leita








Svartbakur

Svartbakur (Larus marinus)
Stærsti máfurinn, svartur á baki og ofaná vængjum, annars hvítur. Goggur gulur, en fætur bleikir. Verður kynþroska fjögurra ára og hefur þá íklæðst fjölda mismundandi ungfuglabúninga.  Lengd 64-78 cm, þyngd um 2 kg, vænghaf 150-165 cm. Fáein hundruð pör verpa á Rosmhvalanesi, flest við flugvöllinn, en strjálingur utan hans. Algengur við fiskivinnsluhús og víðar við ströndina allt árið. Mest er þó af honum á veturna og er hann þá algengasti máfurinn ástamt hvítmáfi. Svartbaki virðist hafa fækkað hér á landi á undanförnum árum. 


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta