Stokkönd
Stokkönd (Anas platyrhynchos)
Stokkönd þekkja flestir, hún er fremur stór önd, steggurinn gráleitur á búkinn, með brúna bringu og grænan haus. Kollan er brúnflikrótt. Bæði kyn með áberandi bláan og hvítbryddaðan vængspegil. Stokköndin er buslönd og hálfkafar eftir æti í vatni. Lengd 50-65 cm, þyngd 1,1 kg, vænghaf 81-98 cm. Næstalgengasta öndin, á eftir æðarfugli. Verpur við tjarnir og sjávarsíðuna í Garði. Á veturna halda um 300 stokkendur til á strandlengjunni milli Stafness og Garðs.