Stelkur
Stelkur (Tringa totanus)
Meðalstór vaðfugl, grábrúnflikróttur á sumrin, en grárri á vetrum. Hvít vængbelti og gumpur áberandi á flugi. Goggur og fætur eru rauðir. Stelkurinn heldur sig í graslendi og votlendi á sumrin, en fjörum á fartíma og á veturna. Á varpstöðvum er hann áberandi og hávær og tillir sér gjarnan á staura og hefur hátt, ef honum finnst utanaðkomandi nálgast unga eða hreiður um of. Lengd 27-29 cm, þyngd um 140 g, vænghaf 60-66 cm. Stelkurinn er algengur varpfugl í Garði. Flestir íslenskir stelkar fara af landi brott á haustin, en talsvert er þó af stelk í fjörum á SV-landi allan veturinn. Um 60 stelkar sjást að jafnaði frá Stafnesi og út í Garð um áramót. Mikil umferð stelka er um fjörurnar á fartíma vor og haust og geta þeir þá skipt hundruðum.