Leita








Steindepill

Steindepill (Oenanthe oenanthe)
Fremur smávaxinn spörfugl, kvikur og fjörugur. Karlfuglinn er grár á baki, hvítur á kviði, með svarta vængi og svarta grímu. Kvenfuglinn er brúnni og dauflitari og vantar grímuna að mestu.  Stélið er hvítt með svörtu "T" aftast. Flýgur lágt og tyllir sér oft með rykkjum og hneigingum. Verpur m.a. í sjávarkömbum, en einnig í hlöðnum veggjum og grjótgörðum. Farfugl sem leitar til V-Afríku á veturna. Lengd 15-16 cm, þyngd um 30 g, vænghaf 25-32 cm. Steindeplar koma í lok apríl. Þeir eru allalgengir varpfuglar víða á Suðurnesjum. Síðsumars og á haustin sækja þeir í fjörurnar. Þeir yfirgefa landið í september, en sjást eitthvað fram eftir október. 


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta