Leita








Snjótittlingur

Snjótittlingur (Plectrophenax nivalis)
Fremur lítill spörfugl. Á sumrin er karlfuglinn hvítur nema bakið er svart og er hann þá nefndur sólskríkja. Annars er fuglinn grábrúnn og dökkflikróttur, ljós að neðan en dekkri að ofan. Félagslyndur utan varptíma og er þá oft í stórum hópum. Kýs sér grýtt og lítt gróið land til varps. Lengd 16-17 cm, þyngd um 35 g, vænghaf 32-38 cm. Útbreiddur varpfugl á Rosmhvalanesi, bæði við sjávarsíðuna og í heiðinni, en verpur yfirleitt fremur dreift. Sækir heim að húsum á veturna, sérstaklega í jarðbönnum, en þeim er gjarnan gefið á hjarnið. Geta þá skipt þúsundum.  Eru einnig í fjörum að vetrarlagi. Lengd 16-17 cm, þyngd um 35 g, vænghaf 32-38 cm.


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta