Skrofa
Skrofa (Puffinus puffinus)
Meðalstór sjófugl af ætt pípunasa. Skrofan er svört að ofan og hvít að neðan með langa og mjóa vængi, rennileg og grannvaxinn og mjög góður flugfugl. Hún er skyld fýlnum og með nasirnar í pípum ofaná goggnum. Skrofur eru oftast í hópum. Þær fljúga lágt yfir haffleti og velta sér á fluginu. Á sundi minna þær á svartfugla, en eru léttsyndari. Lengd 30-38 cm, þyngd um 450g, vænghaf 76-89 cm. Skrofur sjást við Garðsskaga frá því í apríl fram í september, en eru algengastar frá maí til ágúst. Þær sjást á flugi við ströndina og oft situr hópur af skrofum á sjónum skammt útaf höfninni í Garði.