Silfurmáfur
Silfurmáfur (Larus argentatus)
Stór máfur, fullorðnir fuglar eru eins og hvítmáfar (hvítir með grátt bak og vængi), nema að vængbroddar eru svartir með hvítum dílum. Goggur er gulur og fætur fölbleikir. Eins og aðrir stórir máfar, fær silfurmáfur fullorðinsbúning á fjórða ári, en þangað til er búningaskipti þeirra flókin. Þeir breytast gjarnan tvisvar á ári. Lengd 55-67 cm, þyngd um 1,1 kg, vænghaf 138-155 cm. Nokkrir tugir para verpa á Rosmhvalanesi, aðallega innan um sílamáf á flugvellinum. Sést með öðrum máfum í fjörum og á sjó allt árið, t.d. við afrennsli fiskvinnslustöðva.