Leita








Rauðbrystingur

Rauðbrystingur  (Caldris canutus)
Meðalstór, þybbinn vaðfugl. Í sumarbúningi er hann rauðbrúnn á höfði og búk með gráa vængi. Í haustin og veturna er rauðbrystingur grár og virðist hreistraður að ofan. Goggur og fætur eru stuttir og svartir. Lengd 23-25 cm, þyngd um 150 g, vænghaf 57-61 cm. Rauðbrystingur er umferðarfarfugl. Á vorin sjást fuglarnir frá því síðla í apríl og út maí. Haustfarið dreifist yfir lengri tíma en vorfarið og hóparnir eru minni. Rauðbrystingar fara að sjást aftur um miðjan júlí.  Fullorðnu fuglarnir koma fyrst, en ungarnir seinna. Flestir eru farnir um miðjan ágúst, en slæðingur er þó fram undir miðjan september. Stöku fuglar sjást á veturna. 



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta