Leita








Lóuþræll

Lóuþræll  (Calidris alpina)
Lítill vaðfugl, í sumarfiðri er hann auðþekktur á svartri svuntu á neðanverðri bringu og aftur á kvið.  Goggur er fremur langur, svartur og lítið eitt niðursveigður. Fætur eru svartir. Ungfuglar og fullorðnir fuglar á haustin eru án svörtu svuntunnar og minna þá nokkuð á sanderlur. Félagslyndur fugl.  Lengd 16-20 cm, þyngd um 50 g, vænghaf 38-43 cm. Lóuþræll verpur hér og þar í deiglendi á Suðurnesjum.  Mikil umferð lóuþræla er um fjörurnar vor og haust.  Þeir fara að sjást uppúr 20. apríl, og sjást út maí, fyrst íslenskir og síðan grænlenskir. Lóuþrælar fara að safnast í fjörurnar á ný í lok júní og stendur farið fram í septemberbyrjun, en fáeinir sjást fram eftir október. 


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta