Leita








Kría

Kría  (Sterna paradisaea)
Lítill og rennilegur sjófugl, með langa og mjóa vængi og djúpklofið stél. Ljósgrá með svarta hettu, rauðan hvassan gogg og stutta rauða fætur.  Ungfuglar eru með styttra stél, hvítt enni og dekkra bak. Krían er afbragðs flugfugl og þekkt fyrir að verja egg sín og unga af miklu harðfylgi.  Sækjast aðrir fuglar því eftir að verpa innan um hana. Sækir sér fæðu á fjöru og grunnsævi. Lengd 33-35 cm, þyngd um 120 g, vænghaf 75-80 cm. Kríur sjást frá mánaðamótum apríl/maí fram í september, stöku ungfuglar fram í október. Krían er einn algengasti fuglinn við Garðsskaga yfir sumarið og hún er algengur varpfugl í Garði. 



























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta