Hvítmáfur
Hvítmáfur (Larus hyperboreus)
Stór máfur, gengur næst svartbaki að stærð. Fullorðnir fuglar eru alhvítir nema ljósgráir á baki og yfirvængjum. Á veturna er hausinn brúnflikróttur. Ungfuglarnir eru ljósari en aðrir máfar. Grámáfur er samheiti yfir ungfugla stórra máfa, en það getur vafist töluvert fyrir fólki að aðgreina þá og krefst æfingar og yfirlegu. Lengd 62-68 cm, þyngd 1,5 kg, vænghaf 150-165 cm. Aðallega vetrargestur, en er þó viðloðandi allt árið og sjást aðallega geldfuglar á sumrin. Algengasti máfurinn á veturna ásamt svartbaki. Bjartmáfur er líkur hvítmáfi, en minni og fíngerðari. Hann er vetrargestur frá Grænlandi og er algengastur frá október til apríl.