Leita








Hettumáfur

Hettumáfur (Larus ridibundus)
Minnsti máfurinn, sem verpur hér á landi. Á sumrin er hettumáfurinn ljósgrár á baki, hvítur á bringu og með dökka hettu.  Hann missir hettuna í ágúst, en fær hana aftur í mars.  Nýfleygir ungar eru brúnflikróttir að ofan, en lýsast þegar líður á haustið. Lengd 34-37 cm, þyngd um 300 g, vænghaf 100-110 cm. Er bæði sumar- og vetrargestur, sem heldur sig með öðrum máfum við afrennsli fiskvinnslustöðva og er mergðin mjög breytileg, allt frá fáeinum fuglum uppí nokkur hundruð. Stærstu hóparnir sjást venjulega á útmánuðum, en minnst er af honum yfir háveturinn. Sækja talsvert inná tjarnirnar til baða. 


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta