Leita








Heiðlóa

Heiðlóa (Pluvialis apricaria)
Meðalstór vaðfugl, auðþekkt í sumarfiðri á hvítbrydduðum svörtum lit frá andliti niður háls, bringu og aftur á kvið.  Gul- og svartdröfnótt að ofan. Á haustin tapar lóan svarta litnum og er þá dröfnótt frá höfði niður á bringu. Heiðlóa er þrekvaxin, með stuttan svartan gogg og svarta fætur. Rödd hennar er eitt af einkennum íslenska sumarsins. Lengd 26-29 cm, þyngd um 200 g, vænghaf 67-76 cm. Heiðlóan verpur dreift um öll Suðurnes, enda búsvæði víða við hennar hæfi þar sem land er hæfilega gróið. Vor og haust eru lóurnar í stórum hópum í túnum og fjörum. Þær koma snemma og fara seint, fyrstu fuglarnir sjást í venjulega í aprílbyrjun og þeir síðustu fara í nóvember eða jafnvel í desember. 


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta