Fjöruferðir
Fjaran á Garðskaga er einstakur viðkomustaður. Algengt er að fjölskyldur, skólar og útivistarfólk leggi leið sína í fjöruna enda er þar margt að sjá og einn ævintýraheimur fyrir börnin. Aðrar fjörur í Garði ásamt síkjunum þremur: Útskálasíki, Miðhúsasíki og Gerðasíki, laða að sér fjölbreytt fuglalíf á öllum árstímum, en síkin leggur þó venjulega yfir háveturinn.

