Skátafélagið Heiðabúar
Skátafélagið Heiðabúar var stofnað 15. september 1937 í Keflavík og starfar þar enn. Í félaginu eru starfandi tvær deildir önnur í Keflavík og hin í Garðinum en þar var skátastarf endurvakið fyrir nokkrum árum.
Starfsemi skáta í Garðinum hefur á undanförnum tíu árum fest rætur sínar í samfélaginu. Skátastarfið er ætlað ungu fólki á aldrinum 9 - 18 ára og byggir starfið að mestu leyti á sjálfboðastarfi. Þeir sem eru eldri en 18 ára eru að sjálfsögðu velkomnir inn í starfið og er það þá yfirleitt í formi foringjastarfa eða annara tímabundinna verkefna.
Til að gefa ykkur innsýn í það um hvað skátastarfið snýst að þá er rétt að benda ykkur á að markmið skátahreyfingarinnar er að þroska börn og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu.
Skátafélagið hyggst ná þessum markmiðum m.a. með:
· Hópvinnu til að þroska tillitssemi, samstarfshæfileika, ábyrgð og stjórnunarhæfileika.
· Útilífi til að efla líkamsþrek og vekja áhuga á náttúrunni og löngun til að vernda hana.
· Viðfangsefnum af ýmsu tagi til að kenna skátum ýmis nytsöm störf, sjálfum þeim og öðrum til heilla.
· Þátttöku í alþjóðastarfi skátahreyfingarinnar til að gefa skátum tækifæri til að kynnast ungu fólki í öðum löndum, háttum þess og menningu.
Skátastarfið byggir á jafningjafræðslu, aldurshópurinn 8-9 ára (3. og 4. bekkur) starfar í Drekaskátum sem hittast einu sinni í viku, einnig eru dagsferðir yfir vetrarmánuðina og ein helgarútilega að sumri til.
Aldurshópurinn 10 - 12 ára (5. til og með 7.bekkur) starfa saman sem Fálkaskátar. Á þessu tímabili verða þónokkrar breytingar á starfinu, fleiri og lengri útilegur eru á dagskrá og eins meira starf í formi sameiginlegra viðburða. Fundir að meðaltali einu sinni í viku. Sameiginlegir viðburðir að meðaltali einu sinni í mánuði. Tvær stórar útilegur yfir veturinn, einhverjar smærri útilegur, að minnsta kosti eitt skátamót að sumri til.
Aldurshópurinn 13 – 15 ára (8. bekkur, 9. bekkur og 10. bekkur) vinna saman í Dróttskátum. Útilífið tekur völdin og skátarnir fá sín fyrstu kynni af fjallamennsku.
Aldurshópurinn 16 - 18 ára, vinna saman í Rekkaskáum, þau vinna sjálstætt í hóp og eru á þessum tímapunkti kominn yfir í mikið verkelgt starf, hellaferðir, klifur, sig, fjallgöngur, skipulagning stórra viðburða, utanlandsferðir og fleira eru viðfangsefni þessa aldurshóps. Að vísu er þetta einnig það sem að yngri skátarnir vinna við en á miklu breiðari grundvelli.
Aldurshópurinn 19 – 22 ára starfar einnig saman og er þeirra skátatarf mikið tengt leiðtogstörfum.
Til að kynna ykkur skátastarfið nánar er ykkur bent á heimasíðu bandalags íslenskra skáta www.skatar.is eða heimasíðu skátafélagsins Heiðabúar www.skatafelag.is
Þið getið gengið til liðs við skátastarfið hvernær sem er yfir veturinn en félagið auglýsir innritun við upphaf hvers skólaárs.
Skátaheimilið í Garðinum er í Samkomuhúsinu að Gerðavegi.
Upplýsingar um fundartíma má nálgast á heimasíðunni félagsins www.skatafelag.is en best er að hafa samband við starfsmann skátafélagsins í síma 8604470 eða með því að senda tölvupóst á hb@skatafelag.is
Stiklað á stóru í sögu Heiðabúa í tilefni60 ára afmæli félagsins 15. september 1997
Skátafélagið Heiðabúar var stofnað þann 15. september 1937. Stofnendur voru 8 drengir þeir voru: Helgi S. Jónsson, Gunnar Þorsteinsson, Ólafur Guðmundsson, Óskar Ingibergsson, Alexander Magnússon, Helgi Jónsson, Marteinn J. Árnason og Arnbjörn Ólafsson. 4 þeirra eru nú látnir eða farnir heim. Helgi S. Jónsson var aðalhvatamaður að stofnun félagsins. Á fyrstu árunum voru erfiðleikar með húsnæði fyrir starfsemina. Þeir byrjuðu í Klappinbag á Túngötu, fengu síðan gefið gamalt hænsnahús sem þeir innréttuðu í tvö herbergi, þar næst Túngötu 17, sem var kölluð Skemman. Árið 1943 stofnuðu ungar stúlkur 3. sveit í Heiðabúum. Þetta var fyrsta skátafélagið í heiminum með stúlkur og drengi starfandi saman í skátafélagi. Helgi Kristinsdóttir var fyrsti sveitarforingji 3. sveitar. Árið 1945 höfðu skátarnir byggt sér 70 fermetra skátahús langt fyrir ofan bæinn á svæði þar sem kartöflugarðar bæjarbúa voru, og er á horni Vatnsnesvegar og Hringbrautar. Húsið var allt steypt á höndum eins og gert var í þá daga og eiga skátarnir góðar minningar frá byggingartímanum. Árið 1973 var hafist handa við að stækka skátahúsið í 200 fermetra og var það vígt 22. maí 1976. Húsið er dýrmæt eign fyrir félagið og er það eingöngu notað fyrir skátastarf. Þökk sé eldri skátum fyrir bjartsýni og framtakið.
Félagsforingjar hafa verið þessir
Helgi S. Jónsson frá stofnun til 1970.
Magnús Jónsson frá 1970-1977.
Magnús Gunnarsson 1977-1979 en þá lést hann langt um aldur fram.
Eydís Eyjólfsdóttir 1979-1984.
Jakob Árnason 1984-1990.
Sigurður Guðleifsson 1990-1993.
Lárus Frans Guðmundsson 1993-1995.
Sesselja G. Halldórsdóttir 1995-1997.
Selma Kristjánsdóttir 1997- er en félagsforingji.
Gjaldkerar hafa verið.
Jón Tómasson 1938-1970
Björn Stefánsson 1970-1985
Jóna Hróbjartsdóttir 1985-1986
Eydís Eyjólfsdóttir 1986- er en gjaldkeri
Margir skátar hafa setið í stjórn og eru foringjar fyrir félagsins hönd og eiga þeir allir bestu þakkir skildar. Aðalfjáröflun félagsins hefur verið fermingarskeytasalan. Þau voru fyrst seld árið 1945. Þá voru sölustaðir í tjöldum á 2-3 stöðum í bænum. Nú er öldin samt önnur og tími handskriftar er að renna út og tölvuvæðing er að eiga sér stað í skeytasölunni og ég stórefast að nokkrum manni hafi dottið þetta í hug árið 1945 þegar skeytasalan byrjaði fyrst. Á þessum 60 árum sem liðin eru frá stofnun félagsins hefur margt breyst. Tómstunda og íþróttastarf hefur blómgast. Í dag eru börn og unglingar í vanda hvaða tómstundir þeir eiga að velja sér. Í skátastarfinu er leitast við að kenna ungu fólki að bjarga sér að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu. Njóta útivistar, læra skyndihjálp, stjórnun og skemmta sér á heilbrigðan hátt við leiki, söng og störf. Í skátastarfi eru allir jafningjar og mörg vináttan hefur orðið til, og þess minnast skátar þegar minnst er á gamlar stundir í skátastarfinu. Í gegnum árin hafa Heiðabúar stundað útilíf, gönguferðir, útilegur á Höskuldarvöllum, Vigdísarvöllum, Svartshengi, Hústóftum í Grindavík, vormót Hraunbúa, Reykjanesmót, SSR mót í Vestmanneyjum, Heiðabúamót í Höfnum, Landsmót á Úlfljótsvatni, Þingvöllum, Hreðavatni, Kjarnaskógi, Viðey og víðar, og ekki má gleyma Jamboree, alþjóðlegu skátamótunum sem margir Heiðabúar hafa farið á og eru ógleymanleg. St. Georgs gildið í Keflavík var stofnað af eldri skátum árið 1963. Það félag er alltaf starfandi og styður við bakið á Heiðabúum í stærri verkefnum og þegar til þeirrra er leitað. Þeir sem stóðu að upphaflegu byggingu skátahússins eru margir í St. Georgs skátum. Minnisvarði um Helga S. Jónsson fyrsta félagsforingja Heiðabúa var reist á skátalóðinni. Þeir sem stóðu fyrrir því voru eldri skátar og Rotaryklúbbur Keflavíkur. Minnisvarðin var svo afhjúpaður 23. september 1986 en þann dag hefði Helgi S. Jónsson orðið 75 ára. Minninsmerkið er stór hlaðin varða og á henni er lágmynd af Helga í skátabúningi og í kringum vörðuna er hringur sem er áttavitarás. Lágmyndina gerði Erlingur Jónsson. St. Geprgsgildið byggði sér skátaskála á Hvalsnesi árið 1982. Skálinn heitir Tjarnarsel og er notaður til fundarhalda og fyrir útilegur. Heiðabúar byrjuðu að byggja sér útileguskála á skátalóðinni í September 1989. Það voru nokkrir ungir skátar sem byggðu skála með umsjón og aðstoðð Jakobs Árnasonar. Skálinn var svo fluttur á landareign Heiðabúa við Snorrastaðatjarnir 28. febrúar 1993 og vígður 28. maí 1993. Skátaaskálinn heitir Heiðaból. Félagið hefur gefið út nokkur blöð, starfað í skátasamböndum SSK og er nú í skátasambandinu Vörðunni sem er fyrir skáta í Keflavík og Njarðvík. Á hverju ári fara flestir í félagsútilegu, foringjar í foringjaþjálfun og á námskeið. Margir Heiðabúar hafa hlotið viðurkenningar BÍS fyrir vel unnin störf: ársliljur og smára, Þórshamarinn sem er eitt æðsta heiðursmerki BÍS og nokkrir bæjarbúar hafa fengið borgarliljuna frá félaginu fyrir störf í þágu þess þonokkrir hafa fengið forsetamerkið og einnig nokkrir útskrifaðir frá skátaháskólanum á Úlfljótsvaatni með Gillwell gráðu. Gunnar Eyjólfsson Heiðabúi var skátahöfðingji Íslands í þónokkur ár. Fyrir 3-4 árum byrjuðu unglingaar frá Sandgerði og Garði að sækja fundi hjá Heiðabúum og starfa með okkur. Starfið í Garði hefur blómgasst vel og nú starfa þeir með sveitir frá Heiðabúum í Garði. Þau hafa staðið sig sérlega vel og gaman að hafa þau með. Eins og ég sagði áðan, þá hefur margt breyst. Ég hef verið svo lánssöm að starfa með öllum félgsforingjum félagsins. Á þessum árum hef ég kynnst og starfað með mörgu góðu fólki sem setur skátahugsjónina ofar öllu, því það erað ef við reynum að lifa eftir skátaheitinu þá lifir Skátaneistinn í okkur og hann deyr ekki fyrr en við "Förum heim" Fyrir hönd stjórnar Heiðabúa þá vil ég þakka öllum þeim sem hafa starfað sem skátar og stutt við bakið á Heiðabúum. Það er ykkur að þakka að Skátastarfið í bænum okkar er 60 ára í dag.
Eydís B. Eyjólfsdóttir.