Lionsklúbburinn GarðurVið þjónum
Hvað er Lions?Lions er alþjóðasamtök félagslynds fólks sem kemur saman með reglubundnum hætti, einu sinni til rvisvar í mánuði yfir vetrartímann, sér og öðrum til ánægju og samkenndar. Starfið byggist á vináttu félagana og því að fást við verðug verkefni sem gaman er að beita sér fyrir í sinni heimabyggð, á landsvísu og á alþjóðavettfangi.
Alþjóðakjörorð Lions er: Við leggjum lið ( We serve)
Af hverju að ganga í Lionsklúbb?Einstaklingar, jafnt konur sem karlar ganga til liðs við Lions af mörgum ástæðum. það er staðreind að þeir sem finna sig innan Lions fá mikla reynslu af félagsstörfum, svo sem ræðumennsku, fundarsköpum og samstarfi við aðra, auk þess að kynnast góðum félagsskap, góðu fólki sem leggur góðum málum lið og uppsker ánægju og gleði í leik og starfi innan hreyfingarinnar. Á vegum Lionshreyfingarinnar fer fram mikil fræðslustarf sem gagnast öllum til þroska og uppbyggingar. margir ganga til liðs við Lions af hugsjón, eru félagar aratugum saman og njóta þess að vera í skemmtilegu starfi. Ef þú hefur áhuga á að vera með, settu þig þá í samband við stjórn Lionsklúbbsins í þínu byggðarlagi og kynntu þér hvað þar fer fram. Þú hefur allt að græða en engu að tapa, nema mjög skemmtilegu og þroskandi félagstarfi.
Komdu og vertu með!
Ef þú villt vera með í góðum félagskap og láta gott af þér leiða, þá er þetta góður kostur.Að vera félagi í Lionsklúbb er góð leið til að taka þátt í stórri keðju sem áorkar miklu.
Lionshreyfingin er starfrækt í meira en 190 þjóðlöndum með um 44 þúsund klúbba.
Það eru um 1,4 milljónir félaga í Lionshreyfingunni, bæði karlar og konur.
Á Íslandi eru 86 klúbbar vítt og breitt um landið með 2300 félaga
Á Íslandi eru klúbbar ýmist karla, kvenna eða blandaðir klúbbar.
Lionsklúbburinn Garður er blandaður klúbbur.
Lionsklúbburinn Garður var fyrsti klúbburinn á Norðurlöndum til að taka konu í klúbbinn sem fullgildum félaga.
Lionsklúbburinn Garður hefur staðið að mörgum verkefnum, meðal annars gefið öllum 8 ára krökkum í Gerðaskóla reiðhjáolahjálma á undanförnum árum, þá stóð klúbburinn að uppsetningu gangbrautaljósa við Gerðaskóla, þá höfum við styrkt fjölskyldur í byggðarlaginu sem þurft hafa á aðstoð að halda.
Aðalverkefni klúbbsins í mörg ár var rekstur útfaraþjónustu en því var hætt fyrir nokkrum árum síðan.
Í dag er það hin árlega perusala sem unnin er í samvinnu við krakka úr Gerðaskóla og íþróttafélögin í Reykjanesbæ og fá þar hluta af þeim tekjum sem koma af sölunni.
Viltu vita meira?
Talaðu við okkur.
Þórhallur Steinarsson, sími 864 3554.
Kjartan Steinarsson, sími 422 7944 og 898 6944.
Pálmi Hannesson, sími 897 7820 og 421 4929, tölvupóstur
palmiha@simnet.is http://www.lions.is