Leita








Kvenfélagið Gefn

Kvenfélagið Gefn í Garði

Kvenfélagið Gefn í Garði var stofnað 9. desember 1917.  Gefn er félag kvenna sem búsettar eru í Garðinum og nágrenni.  Um 90 félagskonur á öllum aldri, eru í félaginu (feb. 2012).

Aðal tilgangur kvenfélagsins Gefnar er að safna í sjóð til líknar og framfara í Útskálasókn, eins og segir í lögum félagsins.  Félagskonur hafa ætíð verið duglegar að fylgja þessu markmiði eftir, og hafa látið mörg góð málefni til sín taka.  Útskálakirkja hefur verið kvenfélaginu hugleikin frá upphafi og hafa félagskonur sýnt það í verki á margvíslegan hátt í gegnum árin.  Leikskólinn Gefnarborg var stofnaður af kvenfélaginu á sínum tíma.  Hann er okkur því einnig einkar kær og hefur notið þess á líkan hátt og kirkjan.  Margvísleg líknarmál hefur félagið látið sig varða og eru félagskonur ætíð fúsar til að taka þátt í þörfum samfélagsins og gera sitt besta til að auðga það enn frekar.

Þó líknarstarfsemi sé megin markmið kvenfélagsins, þá gefa félagskonur sér tíma til að skemmta sér saman á ýmsan hátt.  Iðulega fáum við virta fyrirlesara til að koma á fundi til okkar, og hafa erindi þeirra verið bæði fróðleg og skemmtileg.  Kosin er kaffinefnd fyrir hvern fund sem sér um að konur fari ekki svangar heim af fundum.  Kaffinefndin sér einnig um að halda uppi fjöri á fundunum með ýmiskonar glensi og gríni. 
Félagskonur hafa farið í leikhús saman og á síðasta fundi vetrarins í apríl, gerum við okkur oftast nær eitthvað til tilbreytingar líka.
19. júní förum við í okkar árlegu dagsferð út fyrir Garðinn og hafa þessar ferðir alltaf skilað okkur góðum minningum.  Konum utan félagsins er velkomið að koma með okkur í þessa ferð.

Kvenfélagskonur ákváðu á sínum tíma að afla fjár til utanferðar félagskvenna.  Sérstök fjáröflunarnefnd er venjulega starfandi og sér nefndin um að halda utan um fjáraflanir ferða með þeim konum sem skrá sig í ferðirnar.  Þessar fjáraflanir eru óháðar félagssjóði og eru fyrir utan hefðbundnar fjáraflanir vegna líknarstarfa kvenfélagsins.
Utanferðir félagskvenna er nú orðinn fastur liður innan félagsins,  síðast var dvalið í vikutíma á Ítalíu og sumarið 2007 fórum við í fimmta sinn á vit ævintýranna og heimsóttum Kanada. Nú sumarið 2012 stefnir hópurinn til Tríól í Austurríki og er mikil tilhlökkun í hópnum.

Til að gerast félagi í kvenfélaginu Gefn, þarf hlutaðeigandi kona að vera borin upp á félagsfundi af einhverri félagskonu, samkvæmt lögum félagsins.
Félagsfundir eru haldnir einu sinni í mánuði á mánudagskvöldum frá október og fram í apríl.  Við hvetjum allar konur til að kynna sér starfsemi kvenfélagsins Gefnar nánar, því það er gaman að vera í kvenfélagi.
Frekari upplýsingar um félagið gefur stjórn félagsins.



Í stjórn Gefnar árið 2012 eru:

Formaður; Herborg Hjálmarsdóttir   s: 422-7154 / 864-1601
Gjaldkeri; Jóhanna A. Kjartansdóttir  s: 422-7088 / 865-8352
Ritari: Guðrún F. Stefánsdóttir   s: 422-7315 / 695-3315

Varastjórn:
Ásdís Guðbrandsdóttir  s: 421-2636 / 845-9197 
Jósefína Arnbjörnsdóttir   s: 422-7254 /  
Jónína Holm s: 422-7268 / 845-2517

Skoðunarmenn reiknina eru;
Guðrún Eyvindsdóttir s: 422-7174 / 892-0740
Kristín Guðmundsóttir s: 422-7143 / 862-9813

Til vara er Margrét Haraldsdóttir s: 421-1522 / 896-1522




























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta