Leita








Kirkjukór Útskálakirkju

Kirkjukór Útskálasóknar
Kirkjukór Útskálakirkju hefur starfað í fjölda mörg ár, en formlega var hann stofnaður 1946 af þáverandi söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar, Sigurði Birkis.  Kórfélagar voru upphaflega 22 og var Auður Tryggvadóttir söngstjóri og organisti.  Hún stjórnaði kórnum í 40 ár, lengst allra í þessu starfi, enda þótti öllum í kórnum afar vænt um Auði.  Síðan hafa margir organistar starfað við kirkjuna, lengst 9 ár, 6 ár og allt niður í 1 ár, allir mjög hæfir í sínu starfi.  En skýringin á því af hverju sumir stjórnendur hafa staldrað svo stutt við er að margir hafa farið í meira nám erlendis.  Kirkjukór er ætlað að annast söng við guðsþjónustur, skírnir, giftingar og útfarir.  Einnig höfum við tekið þátt í kóramótum í Kjalarnesprófastdæmi.  Þá eru aðventutónleikar orðnir árviss viðburður og eru þeir sameiginlegir með Hvalsness- og Útskálasókn, enda sami kórstjóri með báða kórana.
Kórstarf er krefjandi en jafnframt gefandi og mjög góður félagsskapur.  En því miður hefur gengið illa á seinni árum að fá fólk í kórinn og höfum við því orðið að fá fólk úr Sandgerði og Keflavík sérstaklega við útfarir og á hátíðum, því það er ekki spurning að allir vilja góðan kór í kirkjunni.

Kæru Garðmenn, höfum þann metnað gagnvart kirkjunni okkar að efla góðan söng.  Endilega komið og prófið, það verður tekið vel á móti öllum.  Því fleiri sem eru í kór, því meiri möguleikar á að gera margt skemmtilegt.  Söngurinn göfgar og gleður!

Með kærri kveðju,
Kirkjukór Útskálasóknar
Nánari upplýsingar um kórstarfið veita Kristín   422 7091 og Dagbjört  422 730.


























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta