Félagsstarf aldraða
Félagsstarf Garðbúa sem eru 60 ára og eldri og öryrkjar fer fram í Auðarstofu að Gerðavegi 1. Mikil ánægja er með aðstöðuna og þá möguleika sem húsið gefur.
Húsnæðinu er skipt í tvo góða sali, vinnuherbergi, setustofu, eldhús og herbergi sem nýtist sem lager fyrir ýmsan varning sem notaður er til starfsins. Möguleikar á fjölbreyttu starfi eru miklir og góð aðstaða til handverksgerðar, hreyfingar, leikfimi, dansæfinga og leikja. Eldri borgarar völdu nafnið Auðarstofa fyrir húsnæðið.
Í máli Hreins Guðbjartssonar sem flutti ávarp við opnunina koma fram að nafnið hefði verið valið til að minnast Auðar Tryggvadóttur sem bjó að Gerðavegi 1 og rak þar verslun ásamt manni sínum Birni Finnbogasyni á neðri hæð hússins þar sem félagsstarfið er nú. Auður tók virkan þátt í félagsstarfi á meðan hún lifði og var m.a. formaður Kvenfélagsins Gefnar í 25 ár. Eins hefur nafnið skýrskotun í þann mannauð sem býr í eldri borgurum og hvernig hann verður nýttur og efldur í öflugu félagsstarfi.


Skoðaðu myndasafn Auðarstofu
Félagsstarfið Auður 60 ára og eldri og öryrkjar.
Opið þriðjudaga miðvikudaga og fimmtudaga 13:00-16:00
Kaffi og meðlæti kl 14:30 kr 400
Við bjóðum upp á almenna handavinnu td.Postulínmálun, glerbræðslu, tyffanis gler, leir, bútsilla, kertaskreytingar, þæfð ull og skartgripagerð,
eða taka prjónanna eða aðra handavinnu með að heiman.
Leikfimi á miðvikudögum 15:45-16:45 kennari Guðríður S Brynjarsdóttir.
Adda Ólafs kemur á miðvikudögum og býður upp á fótsnyrtingu á 4000.-, það þarf að panta tíma.
Á fimmtudögum eru við að spila félagsvist eða spila bingó.
Ferðalög, skemmtanir og kvöldvökur eru auglýstar í Auðarstofu.
Ekkert þátttökugjald, það þarf bara að borga efniskostnað.
Verið velkomin
Ingibjörg 896-7935
Sigurborg 848-8445
Skoðaðu myndasafn Auðarstofu með því að smella hér