Björgunarsveitin Ægir
Gerðavegi 20b
Sími 422 7263
Fax 422 7261
Neyðarsími: 862 9800
Björgunarsveitin Ægir var stofnuð árið 1935. Framan af var sjóbjörgun aðalstarfsemi sveitarinnar vegna tíðra sjóslysa við Garðskaga og ströndina innan af honum. Síðan sveitin var stofnuð hefur sveitin bjargað fjölmörgum skipverjum af innlendum og erlendum skipum. Aldrei hafa orðið mannskaðar við þær aðgerðir.
Virkir félagar í dag eru um 20 sem skipast í mismunandi flokka svo sem sjóflokk, landflokk, bílaflokk og fleira, jafnframt leggur sveitin til menn í áhöfn stærsta björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem staðsett er í Sandgerði, Hannes Þ. Hafsteinn.
Helstu viðfangsefni sveitarinnar í dag eru leit og björgun við strendur Íslands, leit og björgun á landi, þátttakendur í skipulagi Almannavarna Ríkisins. Einnig tekur sveitin að sér ýmis verkefni vegna fjáraflana.
Ein helsta fjáröflun Björgunarsveitarinnar Ægis er útleiga á geymslum fyrir tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla, en sveitin hefur yfir að ráða góðu rými fyrir þá starfsemi.
Nýir félagar ávallt velkomnir.
Oddur Jónsson, sími 422 7107
Þorsteinn Jóhannsson, sími 422 7161
Björgunarsveitin Ægir fagnaði 70 ára afmæli sínu haustið 2005
Björgunarsveitin Ægir í Garði fagnaði 70 ára afmæli sínu haustið 2005. Sveitin var stofnuð árið 1935. Haldið var upp á afmælið með veglegum hætti. Björgunarsveitin Ægir hefur síðustu ár verið að koma sér vel fyrir í Þorsteinsbúð, björgunarstöðinni að Gauksstöðum í Garði. Þar er félagsaðstaða Björgunarsveitarinnar Ægis og Slysavarnadeildarinnar Unu í Garði.